
Þjónustan okkar
Áherslur okkar 2026 byggjast fyrst og fremst á því að stækka körfuna (add-on-sale).
Að auka söluna án þess að auka launakostnað er lykillinn að árangri fyrirtækja, þvert á allar atvinnugreinar. Við sérsníðum þjónustu okkar að þörfum hvers fyrirtækis og finnum lausn sem hentar til árangurs.
Auk áherslu á söluaukningu vinnum við áfram með hefðbundnar mælingar á þjónustu.


Áratuga Alþjóðleg Reynsla
Better Business er leiðandi fyrirtæki í hulduheimsóknum (Mystery Shopping) á Íslandi. Við höfum byggt upp sterka stöðu í yfir 20 ár.
Fyrirtækið er það eina á Íslandi sem er aðili að MSPA (Mystery Shopping Professionals Association). Aðildin tryggir alþjóðlega viðurkennda aðferðafræði og gæðastaðla.
Með rætur á norrænum markaði sem ná áratugi aftur í tímann, býður Better Business upp á sérþekkingu, strúktúr og trúverðugleika sem greinir okkur frá öðrum.